Til að byrja með þá tilkynnist hér að Dr. William Hitt lést í lok júlí árið 2010.
Af þeim orsökum á sumt af því sem hér er ekki lengur við!

Af hverju eru bandarískir læknar starfandi í Mexíco, hvað ef eitthvað, er verið að fela ?
William M. Hitt hannaði þessa meðferð fyrir rúmum 20 árum og starfaði þá í Texas USA. Þegar FDA.(Food and Drug Administradion) gerði tilkall til þess að hann fengi meðferðina samþykkta af FDA með tilheyrandi kostnaði og mögulegum breytingum á henni tók Dr. Hitt sig upp, sér fullmeðvitaður um að honum entist hvorki fé né aldur til að klára það verkefni og flutti sig til Tijuana þar sem hann hefur fengið að vera í friði fyrir stjórnvöldum. Einnig var hann nokkuð viss um að FDA myndi breyta meðferðinni þannig að hún gerði ekki það sama gagn og hún gerir. Eins og hann útskýrði þetta fyrir mér þá stóð og stendur hans hugur til þess að hjálpa fólki og það vill hann fá að gera í friði.

Hvernig veit ég hvort meðferðin virkar ?
Stroka er tekin hátt úr nefi og send til Willima Hitt Center, þar er metið hvort um vírus, ofnæmi eða eitthvað annað er að ræða. Ef um vírus er að ræða og líkaminn er ekki að ráða við hann (krónískt ástand) þá eru allar líkur á að meðferðin muni hafa áhrif. Aldrei er lofað lækningu ! Meðferðin felst þá í því að berja niður vírusinn og á sama tíma styrkja og upplýsa ónæmiskerfið um vandamálið.

Læknar Óson alla sjúkdóma ?
Því er best svarað, neitandi. Óson, ásamt bólusettningunum (Þvagsprauturnar), þungmálma, Kandída og Silfur meðferðirnar ráða þó við meirihluta þeirra svokölluðu ólæknandi (krónísku) sjúkdóma sem hrjá okkur mennina. Mataræði okkar og það umhverfi (einnig félagslegt umhverfi) sem við höfum dvalið í stórann hluta af ævinni skapar okkur, og annað hvort styrkir okkur eða veikir. Þessa þætti getum við haft áhrif á, og eigum að gera okkur til heilbrigðis. Óson-meðferð er freklegt inngrip í atburðarás sem við í mörgum tilvikum hefðum getað haft áhrif á sjálf, ef við hefðum gert það í tíma. Mjög algengt er að fólk komi til Willima Hitt Center þegar allt annað er þrotið, og samt ná þeir að hjálpa þeim.
Góður vinur minn Dr. Bill Morse sagði eitt sinn við mig: Líkaminn sér um að stoppa okkur þegar við erum að ofgera honum. Hann kemur því til leiðar sem hann þarf. Ef við berum svo "gæfu" til að vinna bug á því sem að okkur sótti, hvort það heitir Krabbamein, Liðagigt, MS eða eitthvað annað, en breytum ekki okkar óæskilegu ytri eða innri aðstæðum, þá mun líkaminn leita að, og finna aðra leið til að stoppa okkur á nýjan leik.

 

Við viljum taka það fram að þær upplýsingar sem birtast um Óson, og aðrar meðferðir á þessari síðu og öðrum síðum í þessu vefsvæði lofa á engann hátt lækningu eða heilsubót að neinu tagi og eru settar upp eingöngu sem upplýsingar og reynslusögur einstaklinga. Sért þú veik/ur þá hvetjum við þig að leita læknis.

Hafa samband: o3@o3.is