Við hjónin Ólafur Einarsson og Björg Marteinsdóttir ásamt yngsta syni okkar Matthíasi Orra Ólafssyni höldum úti þessu vefsvæði, vegna lækningar í fjölskyldu okkar þar sem ósoni var beytt. Björg var þjökuð af gigt í 10 ár (1993 til 2003) en komst þá í samband við amerískan lækni sem hjálpaði henni til heilsu. Löngun okkar er að miðla reynslunni til sem flestra sem svipað er etv. ástatt með og sem vita ekki að til er leið til bata frá erfiðum sjúkdómum. Meðferðin er dýr, sjá síðuna "Spurt og Svarað", en til mikils að vinna.
Engin meðferð er 100% örugg og Björgu var aldrei lofuð lækning hjá William Hitt Center en sé vírus til staðar eins og var í hennar tilviki, þá hjálpar meðferðin. Það sem einnig höfðaði til okkar var sú hugsun að eftir meðferðina er ekki um lyfjameðferð að ræða í neinu formi. Í raun þá er ekki heldur um lyf að ræða á meðan meðferðin stendur yfir ef undan er skilið súrefnið til að búa til ósonið, staðdeifingarefnið Lídókain vegna bólusettninga, heparin og vítamín, ekkert annað. Núna tæpum átta árum eftir meðferðina er Björg einkennalaus, verkjalaus og lyfjalaus og þannig hefur hún verið í allan þennan tíma.

Hver erum við.
Fyrir utan áhuga okkar á öllu heilsutengdu þá liggur hann einnig í golfi, ljósmyndun, handavinnu, bókalestri, minningabókagerð (scrap booking), ferðalögum, sundi, fótbolta og frisbee, og í raun allri útiveru, en líklega má segja að kirkjustarfið sem öll fjölskyldan tekur virkan þátt í taki mest af okkar tíma, en það gefur okkur líka mest. Öll fjölskyldan tilheyrir Kirkju Jesú Krists hSdh. og þar verjum við miklu af okkar tíma við ættfræði og fjölskyldusögu og ýmis félagsstörf ásamt kirkjusamkomum á sunnudögum.
Það skal tekið fram hér að upplýsingar á heimasíðum okkar, eru okkar áhugamál í heilsumálum. Upplýsingarnar hafa ekkert með kenningar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu að gera.
Okkar álit er að það sé skílaus réttur hvers og eins að velja sína leið til heilsu sjálfur, enda valfrelsið stæðsta gjöf Guðs til allra manna.

Hafa samband: o3@o3.is